Ung, gröð og rík

Ung, gröð og rík

08.11.2007 23:57:14 / Marilyn

Ekki hætt að blogga

En samt eiginlega hætt að blogga hér og hætt að blogga um daglegt líf.

En ég er búin að stofna mér matarblogg með kolvetnislausum uppskriftum á www.heimilisfraedi.blogspot.com

og þar verður lítið um mig og mikið um matinn sem ég er að borða.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 22:52:36 / Marilyn

Gestgjafinn í mínu eigin Nýja lífi

Orðin rosalega góð í orðaleikjum af því að vinna hjá Birtíngi. Tók einhver eftir auglýsingunni með "ber í bústaðnum og kjúklingur á ferðalagi"??? Ég vildir reyndar hafa það "ber að utan" en hvað um það. Sá sem á gestgjafann og slysast til að lesa spurt og svarað þarna fremst má vinsamlegast taka til athugunar að ég bæði rannsakaði og skrifaði svarið við þessari spurningu! Nokkuð gott!

 En vá það eru geggjaðir hlutir að henda mig þessa dagana, fíklar af öllum stærðum og gerðum virðist ramba á mig þar sem ég geng minn veg og það er svo gott að spjalla við fólk sem veit ... já bara sem veit, og skilur.

Fór t.d. á árshátíð á laugardaginn þar sem ég þekkti engann nema kallinn minn og við settumst á móti hjónum. Kannaðist aðeins við konuna þar sem ég hef séð hana upp í HÍ en þekkti hana ekkert og hún ekki mig. Kom þá ekki í ljós, eftir stutt spjall, að hún hafði svipaða reynslu og ég, þ.e. hún hafði gefist upp fyrir sjúkdóm og farið að fylgja fyrirmælum annarra til að ná bata frá honum. Þó við hefðum farið ólíkar leiðir þá var niðurstaðan mjög svipuð. Það var ekki nóg með að þetta gerði kvöldið virkilega skemmtilegt, þ.e. að hafa einhvern til að ræða við um það sem skiptir mig hvað mestu í lífinu og sem skildi það, heldur að þetta losaði mig að mjög miklu leiti við þá fordóma sem ég hef gagnvart þeirri leið sem hún kaus að fara. Og hvort tveggja er af hinu góða. Þetta þýðir samt ekki að ég muni hætta að agitera fyrir þeirri lausn sem ég hef fundið ef ég hef færi á! GO BIG BOOK! En ég verð að viðurkenna að ég á engan einkarétt á því að hafa fundið einu réttu lausnina fyrir alla.

En já það er dásamlegt að vera til og ekki vissi ég að ég yrði svona hrikalega bissy í mínu Nýja lífi, þeas. sem vinnandi kona. Og í dag var tekin mynd af mér fyrir blaðið, er svolítið svekkt að fá ekki forsíðuna en þar á víst að vera mynd af einhverjum mat!! go figure! En ég verð dæmalaust sæt á einhverjum af fremstu síðunum og það er ekki svo lítið ;)

Munið bara að hárið mitt er  a la Habbý á Unique. If I don´t look good - she don´t look good!


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 20:26:03 / Marilyn

Molar og BIX

Ég er byrjuð að vinna hjá útgáfufyrirtækinu Birtíngi og vinn þar við prófarkarlestur á Gestgjafanum aðallega og skrifa stundum stutta texta. Ég þvertek þó fyrir að gagnrýna megi stafsetninguna á þessu bloggi.

 

Ég þreytist heldur ekki á að segja fólki að nú sé ég vinnandi kona, þetta er nefnilega ekki sumarstarf. Já ég er í vinnu, hey ég er í vinnu hérna, ég má ekki vera að þessu ég þarf að vinna, ég var í vinnunni í allan dag ... þetta er beisikklí það sem fæst út úr samtölum við mig þessa dagana.

 

Ég er með sér skrifborð, tölvu og síma í vinnunni og tölvugaurinn stillti fartölvuna mína þannig að ég get tengst vinnustaðnum mínum heimanfrá. Er maður orðinn fullorðinn eða hvað?

 

Mér lýst vel á að gamla stjórnin verði ekki áfram. Þó ég sé ekkert sérstaklega hlynnt sjálfstæðisflokknum verð ég að viðurkenna að þeir fengu góða kosningu og eiga því skilið að fá að sitja áfram en framsókn ekki. Sjálfstæði og samfylking - örugglega gott mál og tími til kominn.

 

 Ég er farin að borða meira grænmeti afþví að nú er ég orðin 75 kg og mjög svöng og namm hvað það er gott. Elska að vera pakksödd og fá mér svo sígó - kommon, suma lesti leggur maður einfaldlega ekki til hliðar sí svona.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 10:09:36 / Marilyn

Ch ch ch changes

Afhverju vill fólk aldrei breyta neinu?

Var að lesa svör fólksins á götunni vegna brunans í miðbænum og öllum var rosalega niðrifyrir að ekki yrði byggt neitt nýtískulegt þarna. Allir voru bara rosalega sammála um það að það yrði að endurreisa húsin helst eins og þau voru. Afhverju? Má ekki koma neitt nýtt? Það er ekki eins og þessi hús hafi verið neitt sérlega glæsileg eða endilega vel hönnuð, amk. ekki til þeirrar starfssemi sem var í þeim. Má ekki koma neitt nýtt upp úr þessum rústum? Eitthvað fallegt og flott og ekki endilega í gamla torfkofastílnum?

 Sama sagan er í sambandi við flugvöllinn í Reykjavík. Má ekki færa hann, viljum bara hafa þetta eins og það er. Eins framarlega og Íslendingar eru yfirleitt á tæknimerinni þá eru þeir ótrúlega hræddir við breytingar. Þó ég vilji ekki að innanlandsflugið verði fært til keflavíkur (nema þeir finni upp ótrúlega hraðskreiða lest til að ferja mann á milli) þá fyndist mér ekki úr vegi að þetta fokdýra landssvæði sem Vatnsmýrin er, yrði nýtt í eitthvað annað. Söluhagnaðurinn myndi borga fyrir tvo nýja flugvelli ef ekki meira. Löngusker eða Hólmsheiði, jafn aðlaðandi fyrir mér. Þarf flugvöllurinn endilega að vera kyrr á sama stað þó hann fari ekki til Keflavíkur?

Og svo stjórnmálin? Má ekki breyta? Fjögur ár eru ekki langur tími og ef hugsanlega vinstri stjórn klúðrar málunum þá bara rekum við hana. Að kjósa nýtt afl inn er aðhald og sýnir öllum flokkum að þeir verði að halda sér á tánum til að fá að vera með.  Meira að segja ég væri til í að kjósa sjálfstæðisflokkinn til baka að því gefnu að þáverandi ríkisstjórn væri ekki að standa sig. Þeir þurfa bara aðhald - þá tilfinningu að það sé hægt að reka þá ef þeir standa sig ekki í starfi eða ef breytinga er þörf.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 18:52:36 / Marilyn

Majoneshugleiðingar

Hversu erfitt er eiginlega að finna almennilegt majones í þessari stórborg sem ég bý í. Mér finnst sem ég gæti allt eins búið á Kópaskeri þegar ég þræði hverja verslunina á fætur annarri í leit að ætilegu mæjó. Og ef ég byggi í alvöru á Kópaskeri, þar sem væntanlega eru ekki fleiri en tvær matvöruverslanir, þá væri ég löngu búin að hafa samband við verslunastjórann og biðja hann að sérpanta þetta fyrir mig, því allir þekkjast í litlum bæjarfélögum ekki satt? 

Eina mæjóið sem ég get ekki borðað er framleitt af einhverjum Gunnari og auðvitað er það eina mæjóið sem verslanir Reykjavíkur virðast sjá sér fært að bjóða upp á. Ég vil fá Hellmans og ef það er ekki til vil ég fá E.Finnsson en aldrei Gunnars, ALDREI.  Ég skil bara ekki hvernig stendur á þessu.

Eina verslunin sem ég fór í í dag (ég viðurkenni að ég fór ekki í Hagkaup og Fjarðarkaup afþví þær voru of langt í burtu), og þær voru fjórar í heildina, sem seldi eitthvað annað en majones frá téðum Gunnari var Bónus - og Bónus er verslun þar sem ég geri ekki ráð fyrir að finna fjölbreytt vöruúrval. 

Takk Jóhannes - bjargaðir hádegismatnum! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 11:15:21 / Marilyn

Brjóstahaldarinn yfir - Bra on top

ATH. til að skilja þessa færslu betur er best að vera búinn að lesa pistilinn "náttbuxur". 

Ella Sigga segir að gömlu dementíuðu konurnar á Hrafnistu hafi oft farið í brjóstahaldarann yfir fötin. Fjandinn hafi þessar gömlu konur á undan sinni samtíð. En ég get samt fundið þetta upp sem rosalegt fashion statement ef ég legg til einhverjar grundvallar túlkanir með þessu, sem ég er viss um að gömlu konurnar höfðu ekki.

 Brjóstahaldarinn yfir - grundvallartúlkanir:

Númer eitt: Með því að ganga í brjóstahaldaranum utan á fötunum erum við að fagna kvenleikanum en ekki fela hann. Við erum konur og ættum ekki að þurfa að skammast okkar fyrir það.

Númer tvö: Brjóstahaldarar eru geðsýkislega dýrir og því synd og skömm að þetta tækniundur 20. aldarinnar fái ekki að njóta sín meira. Brjóstahaldarinn þar með gerður almennur en ekki leynilegur eða "einka".

Númer þrjú: Til að fara út í brjóstahaldaranum yfir fötunum þarf kjark og þar til "brjóstahaldarinn yfir" statementið er orðið mainstream (eins og náttbuxnatískan) teljum við þessa upphafningu kvenleikans lið í jafnréttisbaráttunni.

Númer fjögur: Vegna liðs eitt og þrjú teljum við mikilvægt að undirstrika að við viljum jafnrétti þrátt fyrir það að vera konur, á grundvelli þess að við erum konur og á þeim forsendum að við viljum áfram vera konur en ekki bara "félagar í karlaklúbbnum". "Brjóstahaldarinn yfir" statementið minnir alla á að konur verða áfram konur með brjóst og píkur, og þessum mismun á líkama karla og kvenna ber að flagga og fagna án þess að gert sé upp á milli.

 

Sjáumst svo í Kringlunni með brjóstahaldarann yfir!


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 11:16:30 / Marilyn

Náttbuxur

Það er smá grein framan á fréttablaðinu í dag um að náttbuxur séu í tísku hjá ungdómnum í dag og fólk víli ekki fyrir sér að ganga í þessu utandyra um hábjartan dag.

Mig langar bara að tilkynna það hér með að ÉG fann upp náttbuxnatískuna. ÉG!!  Og ég gerði það markvisst fyrir 10 árum síðan þegar ég mætti í náttbuxum í skólann og fór svo í þeim niður í bæ líka. Og vegna þess að þetta var svo fáránlegt þá varð ég að gera þetta amk. tvo daga í röð svo fólk héldi ekki að ég væri að gugna á þessu vegna skoðana annarra.

En þegar það að fara út á meðal fólks, í skólann, í búðina, niður í bæ, í náttbuxunum er ekki lengur  "öðruvísi" og "taboo" þá er þetta ekkert skemmtilegt lengur. Og það er ekki töff að fara út í náttbuxunum bara afþví að allir hinir gera það, þetta er spurning um að þora, og það er ekkert að þora ef maður verður hvort eð er bara eins og allir hinir.

 Næsta mál á dagskrá til að vera öðruvísi verður því að vera skör ofar en náttbuxur, t.d. að vera í brjóstahaldaranum utan yfir fötin.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 22:41:43 / Marilyn

Megi Eurovision geðveikin formlega hefjast

Er búin að skoða nokkur framlög í dag og það er á hreinu að þema Eurovision í ár er "FREAKSHOW". Og ég fíla það. Loksins er Eurovision að nýta alla þá möguleika sem keppnin býður upp á. Þetta er náttúrulega bara freakshow, hefur lengi verið freakshow en með tilkomu Lordi og Silviu Night í fyrra er það orðið opinbert og flestar þjóðir virðast vera að taka þátt í því.

Bretarnir eru með brjálæðislega kitch atriði og lag um einhverjar flugfreyjur. Þetta er hálfgert amatörapopp og hrikalega hallærislegt en samt fyndið afþví að allir vita að Bretar taka Eurovision ekki alvarlega og senda þar af leiðandi alltaf eitthvað rugl. Grúbban heitir Scootch og lagið "Flying the flag (for you)" - það er rosa föðurlandsást í gangi þarna. British imperialism og skemmtilegheit. Ljóshærði gæjinn tók víst þátt í einhverjum sjónvarpsþætti þar sem búið var til stúlknaband sem innihélt bara stráka. Hann var svo massaður og karlalegur að hann var gerður að "rússneska kynskiptingnum" í "stúlkna"hópnum. 

* Ég var að heyra fréttir um að rangt lag hefði verið tilkynnt sem sigurvegari í bresku undankeppninni svo þetta framlag á kannski eftir að breytast í eitthvað allt annað, varla mikið skárra. 

Svíar eru fríkaðri en síðast, en ganga samt ekkert of langt því þeir taka jú keppnina ennþá svolítið alvarlega og vilja vinna. Þeir eru með æðislegan drag-dreng og nokkuð skemmtilegt lag. Spái því að þetta nái langt. Hljómsveitin heitir The Ark og lagið "The Worrying Kind", og söngvarinn er með geðveikt pallíettuhjarta á bringunni. Þetta lag er svolítið svona Wig Wham meats ABBA dæmi.

Úkraína er með fríkaðasta framlagið sem ég hef séð til þessa - hef þó aðeins séð fimm og þá er okkar lag þar meðtalið. Þegar ég kveikti á myndbandinu hélt ég að þetta væri Jón Gnarr að leika dónalegu geimveruna frá plánetunni Zardon. En þetta er samt rosalega skemmtilegt lag og ég sé fyrir mér að það verði spilað og mixað út í gegn á einhverjum skemmtistöðum í vor og sumar. Hljómsveitin heitir Verka Serduchka og lagið heitir "Danzing" sem þýðir víst dansa - hvern hefði grunað það! Eins og alvöru danslagi sæmir er textinn nánast enginn og sama setningin þulin aftur og aftur "zieben zieben ailulu - zieben zieben einz zwei". Good times.

Ísraelar sem venjulega syngja um frið á jörð og að þeir vilji ekki stríð kveða við nýja tón þetta árið og syngja "push the button". Greinilegar orðnir þreyttir á að þykjast alltaf vera góðu gæjarnir en fá samt engin stig fyrir það í Eurovision. (nei ég segi nú bara svona). Þetta lag er svona samblanda af harmonikkufíling frá París, þungarokki og svo er líka rappað. Kemur svolítið spes út og er funky en samt einhvernveginn verið að reyna of mikið. Gæti virkað og gæti líka kolfallið. Hljómsveitin heitir Teapacks og lagið "push the button".

Danir ganga skrefinu lengra en Svíar í freakinu og eru með alvöru drag-Drottningu í kjól og með brjóst og allan pakkann. Hún/hann er ekki ósvipuð í klæðnaði og Silvía Nótt í fyrra með mikið fjaðraskraut á hausnum og glimmer og pallíettur. Ég veit ekki hvað hún kallar sig en lagið heitir Drama Queen og viðlagið festist ágætlega í hausnum. Held samt að þetta verði ekki til neinna stórræða í sjálfri keppninni.

Látum þetta nægja í bili af Eurovision umfjöllun - það er víst bara mars ennþá.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 04:31:38 / Marilyn

Ný klipping

Fór á djammið í kvöld, svona útlítandi.  Nýja klippingin mín er a la Habbý - Unique - Aveda and if I don´t look good, they don´t look good!

Punk on the right, girly on the left

Og ég er búin að vera edrú í 8 mánuði og kolvetnislaus í rúmlega 200 daga. Og það ótrúlega er að mér líður bara nokkuð vel með það. Það er ekki erfitt, það er ekki auðvelt, það bara ER. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 18:14:29 / Marilyn

Klámráðstefnu-umræðan

Mér finnst ógeðslega fyndið í fréttablaðinu í dag að það eru tvær nánast eins greinar um þetta klámráðstefnumál og í lok seinni greinarinnar, þar sem búið er að telja upp einshjóðandi statement frá fyrirtækjum sem taka að sér að hýsa og ferja "klámfólkið" stendur að ekki hafi náðst í Iceland Express vegna málsins.

Það fyndna í þessu er að þetta mál er farið að snúast um fyrirtækin sem klámdreyfararnir bóka sig hjá, sem kemur málið nákvæmlega ekkert við. Þetta er fréttamennska í sinni fáránlegustu mynd; að hafa samband við fyrirtæki sem hvorki stendur fyrir nér stuðlar að klámi vegna þess að það ferjar eða hýsir einstaklinga sem gera það í einhvern tíma.
Svona svipað og að spyrja flugfélögin sem flugvélunum var rænt frá 11. sept hvaða afstöðu þau hafi til hryðjuverka fyrst þau voru að ferja þessa flugræningja á annað borð. Hálfvitar!

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 02:04:09 / Marilyn

Britnead O´Connor

Brilla mín er ekkert að fara varlega í hlutina svona undanfarin misseri. Einhverntímann í fyrrakvöld fékk hún þá flugu í hausinn að vandamálið væri fólgið í hárinu svo hún lét það bara fjúka, þetta gerðist eftir að hún skrapp á meðferðarheimili í korter. Ég bleima meðferðarheimilinu, greinilega ekki gott meðferðarheimili.

En hei - hár er ekki allt og það er hægt að fá fínar kollur þarna vesturfrá ef mann skyldi skyndilega langa. Svo það hefur margt verra gerst en að Britney særi aðeins á sér hárið. Hún var líka búin að skipta litum svo ört undanfarið að lokkarnir hljóta að hafa verið komnir svolítið í mauk. Af með það gamla, upp með það nýja.

Britney skallapoppari

Af þessari millimeterslöngu rót ætti að vera ljóst að Britney var aldrei ekta ljóska. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 11:02:54 / Marilyn

Á heilanum

Ég er með lögin Sensual Healing og I´m in change (baby baby, I´m in change) á repeat í hausnum á mér. Svona um það bil þrjár til fjórar línur úr hvoru lagi og þau spilast hvert á eftir öðru aftur og aftur.
Ég skil ekki afhverju ég er að fá svona gömul (og léleg) lög á heilann þessa dagana. Þetta er allt rosalega "NOW 25" dæmi.

Er eðlilegt að finnast FedEX vera skárri kost en Britney Spears.
Ég held reyndar að hann sé ennþá fífl, en hann er klárt fífl. Þar að auki eru papparassarnir ekkert að elta hann, svo ef hann hefur einhverstaðar verið að væflast með punginn úti, blindfullur að taka í nefið eða slummandi upp í einhverjar stelpur þá vitum við ekki af því afþví að það nennir enginn að taka myndir af honum. Heppinn!
Bibba mín ætti nú samt að leita sér aðstoðar - hún er klárlega ekki heil á geði eða vitsmunum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 00:38:16 / Marilyn

Ég er ekki að nenna þessu

Ég er eitthvað að missa áhugann á þessu blogg dóti öllu saman. Á kannski eftir að skrifa meira, það verður þá eitthvað ómerkilegt bara. Ekkert sem má ekki missa af.

En ég vil bara segja eitt áður en ég klára þennan póst - mér finnst ógeðslega hallærisleg að á öllum veitingahúsum geti maður valið um hitt og þetta rauðvín, hvítvín, bjórtegundir osfrv. En ef það er búið að gera samning við Vífilfell þá fæst bara kók og kók læt. Ég er pepsi  max kona og finnst kók læt vont. Afhverju get ég fengið bjór frá sitthvoru bjórfyrirtækinu en ekki coladrykk frá sitthvorum coladrykkjarframleiðandanum. Mér finnst þetta vera algjör grundvallarmannréttindi, að geta drukkið pepsi max með fína matnum þá sjaldan maður fer út að borða. Aldrei myndi ég panta mér rauðvín með mat sem ég vissi fyrirfram að mér þætti vont. ALDREI!
Ok ég er búin núna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 11:38:28 / Marilyn

Gleðilegt ár krakkaskrattar

og takk fyrir gamla. Átti fín jól og þó að hlutirnir væru ekki alltaf eftir mínu höfði þá var ég sátt við það sem ég fékk. Og þá er ég ekki að tala um jólagjafirnar, þær voru allar æði. Nei ég meina að maður spilar úr þeim spilum sem maður fær og sættir sig við útkomuna afþví að maður gerði þess besta til að njóta. Og þá getur maður verið sáttur þó maður velti því fyrir sér afhverju hlutirnir gætu ekki verið betri og meira "eins og ég vil hafa þá". Ég get víst ekki stjórnað öllu en ég get verið sátt við það sem ég fæ, því það sem ég fæ er alltaf nákvæmlega það sem ég þarf.

Og nú er stelpan mín orðin fjögurra ára og við báðar nokkuð sáttar við það. Það virkar vel sem uppeldisaðferð að segja henni að nú sé hún orðin svo stór hún komist bara ekki upp með að vera óþekk lengur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 20:49:51 / Marilyn

Veður og stórslys

Jeminn eini - þetta veður er ekki alveg í lagi. Er komið vor? Eru kannski að koma páskar? Páskahret!
Allar stórslysafréttir eru slæmar - en einhvernveginn verða þær sérstaklega slæmar þegar það eru alveg að koma jól. Maður veit líka að fólkið sem lendir í vatns og aurtjóni hefur ekkert tíma til að standa í þessu veseni. Fólkið sem kemst ekki í flug hefur ekki tíma til að bíða eftir að veðrið lagist. Og hvað ef það lagast svo ekkert?
Jólastressið batnar víst ekki mikið þegar maður lendir í svona rugli, eða ... hmm kannski hættir maður bara að hafa jólastress og sér að það er margt mikilvægara í heiminum en að hafa allt klárt fyrir jólin, eins og til dæmis að vera á lífi og hafa þak yfir höfuðið. Skítt með jólagjafirnar.

Vill einhver taka sér mínútu og pæla vel í því að ég hef skíðað niður nákvæmlega sömu brekkur og heimsmeistarar kvenna í svigi!!!! Veit hvar í Val d'Isere þessi braut er, veit meira að segja að það er skíðaleiga rétt hjá þar sem ég leigði skíði og klossa um árið. Og klossarnir meiddu mig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
A WHOLE NEW ME!